Jónína Bjartmarz (andsvar):
Herra forseti. Það var alls ekki ætlun mín að reka hæstv. utanrrh. á gat með þessar tölulegu upplýsingar sem ég óskaði eftir. En í svari við fyrirspurn sem ég nefndi í ræðu minni komu ýmsar góðar upplýsingar fram, m.a. um fjöldann, án þess að kyngreint væri, þ.e. hversu margir karlar og konur hefðu verið send á vettvang og hversu margir væru tilbúnir í viðbragðsstöðu.
Í því ágæta svari kom fram hvernig undirbúningi væri háttað núna og lögð áhersla á að það stæði jafnvel til að huga að breytingum á undirbúningi samtímis því að efla friðargæsluna. Mér leikur líka forvitni á að vita --- þó að hæstv. utanrrh. geti því miður ekki svarað nú þegar --- hvernig breyta eigi undirbúningnum. Ef við ætlum að ráða konur til starfa er ljóst að sá undirbúningur sem lýtur að öryggismálum, að læra á áttavita og beita staðsetningartæki, miðast ekki við þau störf sem falla kannski helst að því sem konur geta sinnt innan friðargæslunnar.
Það væri gott, einhvern tíma seinna í þessari umræðu, að fá upplýst hvernig áherslubreytingin á að verða í undirbúningi og þjálfun fyrir friðargæsluliða á næsta ári.