Flutningskostnaður

Mánudaginn 17. nóvember 2003, kl. 15:27:20 (1692)

2003-11-17 15:27:20# 130. lþ. 28.1 fundur 147#B flutningskostnaður# (óundirbúin fsp.), iðnrh.
[prenta uppsett í dálka] 28. fundur, 130. lþ.

[15:27]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Í rauninni er það ekki mitt að svara fyrir þetta vegna þess að hæstv. fjmrh. fer með mál er varða þungaskatt og hugsanlegt olíugjald sem er á frv. sem er til umfjöllunar hjá stjórnarflokkunum. Hins vegar hefur ríkisstjórnin heimilað að senda málið til þingflokkanna til umfjöllunar. Þetta mál er óútrætt og það er rétt að allar líkur eru á því, miðað við útreikninga sem ég hef séð, að þetta geti hækkað rekstrarkostnað þeirra fyrirtækja sem starfa í greininni. Ég hef í sjálfu sér ekki meira um það að segja. Þetta mál er til umfjöllunar hjá stjórnarflokkunum.