Niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar

Mánudaginn 17. nóvember 2003, kl. 19:00:14 (1766)

2003-11-17 19:00:14# 130. lþ. 28.5 fundur 305. mál: #A niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar# (stofnstyrkir, jarðhitaleit) frv., DrH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 28. fundur, 130. lþ.

[19:00]

Drífa Hjartardóttir (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er gott að heyra það, og aldrei heyrir maður það nógu oft hvað þetta hafi verið góð byggðaaðgerð að lækka húshitunarkostnað á landsbyggðinni. Þetta er mjög mikil og góð byggðaaðgerð og eitt af mörgu góðu sem þessi ríkisstjórn hefur gert. Ég vil líka nefna stuðning við námskostnað og annað þess háttar.