Tilkynning um þinghaldið

Miðvikudaginn 19. nóvember 2003, kl. 13:32:37 (1898)

2003-11-19 13:32:37# 130. lþ. 30.94 fundur 166#B tilkynning um þinghaldið#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 30. fundur, 130. lþ.

[13:32]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil vekja athygli á því að samkvæmt starfsáætlun Alþingis er hvorki þingfundur á morgun né á mánudag þar sem fundir eru í nefndum þingsins á fimmtudag, föstudag og mánudag. Næsti reglulegi þingfundur verður þriðjudaginn 25. nóvember en þá fer fram 2. umr. fjárlaga. Þess má vænta að á mánudag verði stuttur fundur til að útbýta nefndarálitum og breytingartillögum frá fjárln. Sá fundur verður boðaður síðar.