Reiðhöllin á Blönduósi

Miðvikudaginn 19. nóvember 2003, kl. 19:52:33 (2010)

2003-11-19 19:52:33# 130. lþ. 31.15 fundur 270. mál: #A reiðhöllin á Blönduósi# fsp. (til munnl.) frá landbrh., DrH
[prenta uppsett í dálka] 31. fundur, 130. lþ.

[19:52]

Drífa Hjartardóttir:

Herra forseti. Vegna þeirrar umræðu sem fer hér fram vil ég láta þess getið að styrkveitingar frá Byggðastofnun eru afar litlar, þar er úr mjög litlum fjármunum að spila. Styrkir í svona stór verkefni mundu engan veginn nægja til. Það hleypur allt á hundruðum þúsunda kr. sem verið er að styrkja þar.

Aftur á móti hefur Byggðastofnun samþykkt reglur um aðkomu að reiðhöllum sem er þá í formi hlutafjár eða lána en ekki neinna styrkveitinga í reiðhallir, enda er ekki þeim fjármunum úr að spila. En reglurnar um hlutafélög og lán fara bara eftir almennum reglum.