Frsm. meiri hluta fjárln. (Magnús Stefánsson) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir orð hans í upphafi varðandi breytt verklag og ég er honum sammála í því. Varðandi atvinnuleysisbæturnar og það mál allt saman er ekki búið að gera neinar brtt. á frv. og mér er ekki kunnugt um að það hafi komið fram frv. í þinginu um þetta mál þannig að ég get ekki svarað því nánar.
Hins vegar varðandi komugjöld á heilsugæslustöðvar er ekki gerð nein breyting á því máli hér. Þarna er um að ræða að hækka komugjöld á heilsugæslustöðvar um 100 kr. fyrir hverja komu og það er ekki áformuð nein breyting á því.