Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Jón Bjarnason) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég harma þessa yfirlýsingu hv. þm. Magnúsar Stefánssonar, formanns fjárln., og skora á hann að beita áhrifum sínum sem formaður nefndarinnar og einnig áhrifum sínum innan annars stjórnarflokksins, Framsfl., til að fella þessa skerðingu á atvinnuleysisbótum burt úr frv. Hún er til skammar og ekki mannsæmandi. Meira að segja framsóknarfélög víða um land leggjast gegn henni. Þó að mér sé ekki gjarnt að vitna til þeirra met ég baráttu þeirra úti um allt land gegn þessari stefnu Framsfl. sem virðist vera rekin af forustunni í Reykjavík en væntanlega þó ekki af hæstv. heilbrrh., enda er hann öðruvísi maður og Skagfirðingur.
Einnig varðandi komugjöldin á heilsugæslustöðvar og til sérfræðilækna. Það er alveg dæmalaust. Ef á að slá þennan tón í því hvert eigi að sækja hagræðingu eða sparnað í ríkisrekstri, ef á að sækja það til atvinnulausra, til sjúklinga og þeirra sem þurfa að leita aðstoðar og njóta stuðnings samfélagsins, hvenær kemur röðin að okkur í þeim efnum?