Fjárlög 2004

Þriðjudaginn 25. nóvember 2003, kl. 14:09:44 (2023)

2003-11-25 14:09:44# 130. lþ. 33.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 2004# frv., Frsm. meiri hluta MS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 33. fundur, 130. lþ.

[14:09]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Magnús Stefánsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hef engu við að bæta það sem ég sagði áðan. En ég vek athygli á því að hv. þm. leggur sig greinilega fram um að kynna sér það sem á sér stað innan Framsfl. (Gripið fram í.) og ég fagna því, enda veit ég að hann ber í sér mjög sterk framsóknargen.