Jón Bjarnason:
Virðulegi forseti. Ég held að við öll þekkjum hina miklu umræðu um sorpförgun í landinu. Mörg sveitarfélög standa frammi fyrir því vandamáli að finna lausn á sorpmálum sínum. Hvert sveitarfélag er í því sambandi að leita að sérstökum stað, jafnvel innan sinna marka, eða þá að nokkur sveitarfélög reyna að slá sér saman um það. Jafnframt þessu hafa reglur um meðferð sorpurðunarstaða verið hertar og allar reglur um meðferð sorps.
Því leggjum við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs til að umhvrn. verði falið að gera landsúttekt á sorpmálum og vinna tillögur um heildstæðar aðgerðir í sorpförgun í landinu. Þetta er ekki málefni einstakra sveitarfélaga sem slíkt heldur verður að vinna heildstæða úttekt á möguleikum í sorpförgun til framtíðar. Ég tel þetta afar brýnt. Við þekkjum öll þessa umræðu innan sveitarfélaganna. Sorpförgunarmálin eru gríðarlegt vandamál. Það er miklu nær að við tökum á þessu heildstætt.