Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Hér koma til afgreiðslu breytingartillögur um að við bætist heimildir til að selja allmargar jarðir í eigu ríkisins vítt og breitt um landið. Við höfum undanfarin ár, þingmenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs, verið mjög gagnrýnin á hvernig ríkið hefur farið með jarðeignir sínar. Þar hefur ríkt mjög handahófskennd framkvæmd varðandi það hvort jarðir eru seldar, hvernig og hverjum. Í reynd vantar alla stefnumótun um hvernig ríkið skuli fara með opinbert jarðnæði.
Mikillar og vaxandi gagnrýni gætir í garð þess að ríkið selji einkaaðilum, jafnvel úr þéttbýli, jarðir í sveitum sem gjarnan leiðir til þess að afnot nálægra landeigenda og bænda af jarðnæðinu minnka. Vegum er lokað með keðjum og umferðarréttur almennings og möguleikar til að njóta útivistar á opinberu landi minnka. Öll þessi mál þarf að taka til endurskoðunar og framkvæmd þeirra hefur verið í skötulíki í höndum hæstv. landbrh. og ríkisstjórnar. Það er auðvitað til skammar, herra forseti, eins og fleira.