Björgvin G. Sigurðsson:
Virðulegi forseti. Hér er hreyft ákaflega mikilvægu máli svo vægt sé til orða tekið. Óhætt er að fullyrða að um er að ræða eitt af alvarlegustu meinum okkar samfélags. Það á sérstaklega við um einelti í skólum.
Segja má að undanfarin missiri hafi átt sér stað þjóðarvakning í allri umræðu um einelti og er það vel. Það má ekki síst rekja til þess mikla starfs sem Regnbogabörn undir forustu Stefáns Karls Stefánssonar hafa innt af hendi. Það er einstakt framtak og verður seint að fullu lofað.
Þær sögur sem við höfum heyrt úr barna- og unglingaskólum af þeirri hroðalegu útreið sem mörg börn og unglingar fá í illvígu einelti eru með því alvarlegra sem um getur. Það er ástæða til að fagna þessari fyrirspurn frá hv. þm. Margréti Frímannsdóttur og Guðrúnu Ögmundsdóttur og hvetja ráðherra sérstaklega til að beita sér fyrir því að ráðuneyti sameinist um könnun á umfangi eineltis hér á landi og beiti sér sameiginlega gegn þessum mikla bölvaldi í samfélagi okkar.