Sigurður Kári Kristjánsson:
Frú forseti. Ég vil taka undir með hæstv. starfandi menntmrh. og segja að hér er komið upp af litlu tilefni. Ég tek undir orð hans að þeir sem hingað hafa komið upp, fulltrúar stjórnarandstöðunnar, hafa verið ansi stóryrtir og sakað ríkisstjórnina um ritskoðun sem er náttúrlega fáheyrður málflutningur af litlu tilefni. Ég vil benda þeim hv. þingmönnum á sem hafa svo miklar áhyggjur af því að stjórnmálamenn séu að hafa óeðlileg afskipti af því sem fram fer innan þessarar stofnunar að fyrir Alþingi liggur frv. frá mér, hv. þm. Pétri Blöndal og hv. þm. Birgi Ármannssyni sem gengur út á að afskiptum stjórnmálamanna og pólitískra aðila að rekstri Ríkisútvarpins verði algerlega lokið svo og að tengslum ríkisvaldsins af rekstri fjölmiðilsins verði hætt. Ef þeir hafa áhyggjur af því, hv. þingmenn, að stjórnmálamenn séu að misbeita valdi sínu við rekstur og fréttaflutning þessarar stofnunar, eiga menn náttúrlega að hoppa upp í bátinn hjá okkur þingmönnunum og styðja það frv. sem liggur fyrir þinginu, því ef það verður samþykkt þurfa þeir ekki að halda ræður eins og þær sem hér hafa verið haldnar á hinu háa Alþingi.