Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir góð og greinargóð svör. Hins vegar vekja svörin upp eina spurningu og hún er þessi, ef hæstv. fjmrh. vildi svara því í öðru andsvari: Á að skilja þetta mál þannig að hér verði komið inn með frumvarpið sem var verið að boða varðandi olíudæmið, án þess að það fylgi því nein útfærsla um hækkaðan flutningskostnað?