Almenn hegningarlög

Fimmtudaginn 27. nóvember 2003, kl. 17:09:42 (2271)

2003-11-27 17:09:42# 130. lþ. 37.5 fundur 146. mál: #A almenn hegningarlög# (fullgilding spillingarsamnings) frv. 125/2003, Frsm. BjarnB
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 130. lþ.

[17:09]

Frsm. allshn. (Bjarni Benediktsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá allshn. um frv. til laga um breyting á almennum hegningarlögum og lögum um refsiábyrgð lögaðila vegna mútugreiðslna og hryðjuverka.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Rögnu Árnadóttur og Dís Sigurgeirsdóttur frá dómsmálaráðuneyti og Hallgrím Ásgeirsson sem hafði hönd í bagga með að semja frumvarpið. Umsögn barst um málið frá Alþýðusambandi Íslands.

Frumvarpinu er ætlað að breyta ákvæðum almennra hegningarlaga og laga um refsiábyrgð lögaðila vegna mútugreiðslna og hryðjuverka til samræmis við ákvæði alþjóðasamnings á sviði refsiréttar um spillingu. Með spillingarsamningnum er komið á samræmdum efnis- og málsmeðferðarreglum í samningsríkjunum varðandi tiltekin spillingarbrot. Þannig verða mútubrot, þ.e. mútugreiðslur og mútuþágur, spilling í viðskiptalífi og svokölluð áhrifakaup refsinæm samkvæmt ákvæðum frumvarpsins.

Samhliða afgreiðslu frumvarpsins er ráðgert að samþykkt verði tillaga til þingsályktunar flutt af utanríkisráðherra um fullgildingu samningsins.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.