Málefni aldraðra

Fimmtudaginn 27. nóvember 2003, kl. 17:11:29 (2272)

2003-11-27 17:11:29# 130. lþ. 37.6 fundur 143. mál: #A málefni aldraðra# (gjald í Framkvæmdasjóð) frv. 120/2003, Frsm. DrH
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 130. lþ.

[17:11]

Frsm. heilbr.- og trn. (Drífa Hjartardóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. frá heilbr.- og trn. um frv. til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999, með síðari breytingum.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Vilborgu Hauksdóttur frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti og Helga Hjálmsson og Stefaníu Björnsdóttur frá Landssambandi eldri borgara.

Í frumvarpinu er lagt til að gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra verði hækkað um 2,5%, um 136 kr. á hvern gjaldanda, úr 5.440 kr. í 5.576 kr. Hækkunin er í samræmi við áætlaðar verðlagsbreytingar en gert er ráð fyrir að byggingarvísitala hækki um 2,5% frá meðalverði ársins 2003 til meðalverðs ársins 2004.

Gert er ráð fyrir því í fjárlagafrv. að gjaldendur verði 169.000 og því hækka tekjur sjóðsins um 23 millj. kr. frá forsendum fjárlagafrumvarpsins.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Margrét Frímannsdóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson og Þuríður Backman skrifa undir álitið með fyrirvara. Varðar hann þær skerðingar sem sjóðurinn hefur orðið fyrir og honum hafa ekki verið bættar. Leggja þau áherslu á mikilvægi þess að sjóðurinn hafi það ráðstöfunarfé sem honum hefur verið ætlað og að honum verði bættar þessar skerðingar en knýjandi þörf er á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða. Þau gera einnig þann fyrirvara að of mikið af tekjum sjóðsins hafi farið í rekstur og telja að fé sjóðsins eigi að fara til uppbyggingar öldrunarstofnana.

Jónína Bjartmarz og Guðrún Ögmundsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nál. rita auk mín hv. þm. Margrét Frímannsdóttir, Pétur Blöndal, Ágúst Ólafur Ágústsson, Þuríður Backman, Sigríður Anna Þórðardóttir og Dagný Jónsdóttir.