Frsm. meiri hluta fjárln. (Magnús Stefánsson) (andsvar):
Herra forseti. Þetta er út af fyrir sig mjög góð spurning. Þær upplýsingar sem ég hef um þetta mál eru þær að komið hafi í ljós að húsnæðið hafi verið í verra ástandi en ætlað var við fyrstu áætlanir og einnig að kröfur um öryggismál og allar þær kröfur sem gerðar eru til svona húsnæðis munu reynast kostnaðarmeiri en upphaflegar áætlanir hafi gert ráð fyrir. Þetta eru þær skýringar sem ég get gefið hér á þessari stundu. En mér finnst þessi fyrirspurn hv. þm. eiga fyllilega rétt á sér.