Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Einar Már Sigurðarson) (andsvar):
Frú forseti. Ég vona að orð hæstv. fjmrh. séu í þá áttina að nú eigi að auka tökin á þessu öllu og þá vænti ég þess að tökin verði efld þannig líka að menn verði nær fjárreiðulögunum í þessu öllu saman. Því fagna ég að sjálfsögðu, hæstv. ráðherra, þegar menn ná tökum á því.
Aðeins vegna vefritsins. Þar sem tilvitnunin var beint í Ríkisendurskoðun gagnrýni ég það helst fyrir hvað henni var hælt. Það var gefið í skyn að það væri Alþingi sem missti öll tökin á römmunum en Ríkisendurskoðun hafði einmitt komist að því að þar væri ríkisstjórnin fremst í flokki. Þessu var sleppt í tilvitnuninni þannig að það nálgaðist að verið væri að falsa eða færa sök í máli, ef einhver er, í þessu tilfelli.
Um það sem hæstv. ráðherra sagði varðandi þá hættu að stofnanir fengju meira ef þær kæmust til fjárln. verð ég aðeins að segja þetta: Því miður sýnist mér af þessum orðum að traust hæstv. ráðherra á meiri hluta fjárln. mætti vera meira.