Happdrætti Háskóla Íslands

Þriðjudaginn 02. desember 2003, kl. 13:47:24 (2337)

2003-12-02 13:47:24# 130. lþ. 39.2 fundur 140. mál: #A Happdrætti Háskóla Íslands# (endurnýjað einkaleyfi) frv. 127/2003, GAK (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 39. fundur, 130. lþ.

[13:47]

Guðjón A. Kristjánsson (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Eftir umræður sem fóru fram í þingsal um þetta mál virðist, enn frekar en stendur í nefndarálitinu, leika vafi á um að þetta mál eigi hér að fá framgöngu. Skilningur manna á því, eins og hann birtist hér, er að hér geti jafnvel verið um mál að ræða sem fer á skjön við reglur og lög. Við munum segja nei við þessu máli.