Kristján L. Möller:
Virðulegi forseti. Mig langaði aðeins að leggja eina spurningu fyrir hæstv. forseta: Hverju sætir það að þingfundi hefur verið frestað nú í tvígang, þ.e. í 22 mínútur? Það var boðað til þingfundar kl. 13.30 og tvisvar hefur honum verið frestað. Ég spyr hæstv. forseta hverju það sæti að í tvígang hafi þurft að fresta fundi.