Fyrirspyrjandi (Guðjón Ólafur Jónsson):
Hæstv. forseti. Því hefur oft verið haldið fram að hv. þingmenn Reykjavíkur hafi ekki nægilega mikinn áhuga á samgöngumálum í Reykjavík og hafi ekki barist nægilega fyrir þeim málum. Ég ætla ekki að láta segja það um mig og hef því lagt fram þrjár fyrirspurnir til hæstv. samgrh. um samgöngumál í Reykjavík. Sú fyrsta snýr að færslu Hringbrautar og er á þskj. 174.
Eins og menn vita er fyrirhugað að færa Hringbrautina þannig að hún fari undir núverandi brú á Bústaðavegi, suður fyrir Læknagarð og Umferðarmiðstöðina og þá muni gagnamót breytast við Snorrabraut og Bústaðaveg og sömuleiðis muni gatnamót við Njarðargötu breytast. Síðan verði ný gatnamót þar sem væntanlegur Hlíðarfótur tengist Hringbraut.
Megintilgangur með þeirri framkvæmd, að færa Hringbrautina, er að sameina lóð Landspítala -- háskólasjúkrahúss sem nú er beggja megin við Hringbrautina og sömuleiðis að tryggja frekari uppbyggingu á háskólasvæðinu og í Vatnsmýrinni.
Gert var ráð fyrir að þetta verk yrði að mestu leyti framkvæmt á árinu 2005, síðan var ákveðið að flýta framkvæmdinni þannig að hún kæmi að mestu leyti í gagnið á næsta ári þó einhver frágangur yrði eftir og biði til ársins 2005.
Nú vil ég vita, hæstv. forseti, hvernig staðan á þessari framkvæmd er og spyr því hæstv. samgrh.: Hvað líður færslu Hringbrautar í Reykjavík?