Sundabraut

Miðvikudaginn 03. desember 2003, kl. 18:25:01 (2480)

2003-12-03 18:25:01# 130. lþ. 41.10 fundur 174. mál: #A Sundabraut# fsp. (til munnl.) frá samgrh., AKG
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 130. lþ.

[18:25]

Anna Kristín Gunnarsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég vil leggja nokkur orð í belg um þetta mikilvæga mál sem við erum að ræða.

Það er hárrétt sem hér hefur komið fram að þetta er ekki síður hagsmunamál þeirra sem búa utan Reykjavíkursvæðisins en þeirra sem hér búa. Og ég ætla að minna hæstv. samgrh. á að Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa ályktað a.m.k. einu sinni um mikilvægi þess að umrædd framkvæmd komist í gagnið sem allra fyrst.

Varðandi það að aðeins sé um byrjunaráfanga að ræða, þá finnst mér eðlilegt og æskilegt að fólk horfi á heildina því eins og þetta liggur í framtíðinni þá skiptir þetta okkur öllu máli.

En ég hvet til þess að þessu verði komið á sem allra, allra fyrst.