Bryndís Hlöðversdóttir:
Virðulegi forseti. Því hefur ekki verið svarað hér af hálfu hv. formanns efh.- og viðskn. hvort fyrra álitið sem fjmrn. óskaði eftir sé komið fram og hvort hann hafi séð það. Ég vil inna hann eftir því, virðulegi forseti, hvort svo sé og ég held að það hljóti að vera algerlega óumflýjanlegt að það liggi fyrir í síðasta lagi við upphaf umræðunnar um fjárlög sem fram fer hér á eftir. Ég trúi því ekki að óreyndu, virðulegi forseti, að ríkisstjórnin ætli eina ferðina enn að fara með hæpið mál sem hugsanlega stangast á við 72. gr. stjórnarskrárinnar sem ríkisstjórnin er nú farin að gæla svolítið mikið við upp á síðkastið, hvort það sé svo, virðulegi forseti, að það eigi enn og aftur að fara að afgreiða mál sem stangast hugsanlega á við þá grein. Þess vegna hljótum við, virðulegi forseti, að kalla eftir svari frá hv. formanni efh.- og viðskn. þess eðlis hvort hann hafi séð það álit sem fjmrn. innti eftir og hvort hann hyggist þá ekki kynna það í efh.- og viðskrn. ef svo er, jafnvel þó að álitið sem efh.- og viðskn. leitaði eftir liggi ekki fyrir.