Bryndís Hlöðversdóttir:
Virðulegi forseti. Ég held að hv. formaður efh.- og viðskn. þurfi að sjálfsögðu að upplýsa það fyrir þá umræðu sem hér fer fram á eftir hvers efnis það álit er sem nú þegar liggur fyrir. Það hlýtur að vera þess eðlis, ef menn ætla að afgreiða fjárlögin í dag með vaxtabótahugmyndir sínar þar inni, og þá geri ég að sjálfsögðu ráð fyrir því að álitið kvitti algerlega upp á að það sé alveg örugglega í takt við stjórnarskrá að gera það á þann hátt sem hæstv. ríkisstjórn ætlar að gera í dag.
En auðvitað eru það fáránleg vinnubrögð, virðulegi forseti, að fara eigi að afgreiða fjárlög áður en þetta álit er kynnt og að hv. formaður efh.- og viðskn. einn hafi fengið að sjá það ásamt væntanlega hæstv. fjmrh. sem álitið er unnið fyrir, en án þess að kynna eigi það í hv. efh.- og viðskn. Þetta eru fáránleg vinnubrögð, virðulegi forseti og ég krefst þess fyrir hönd þingmanna í mínum flokki, Samfylkingunni, að haldinn verði fundur í efh.- og viðskn. um þetta mál og álitið tekið þar fyrir og kynnt. Það er algerlega óþolandi að eiga að fara að afgreiða fjárlög og greiða um þau atkvæði fyrr en það liggur fyrir hvort menn séu að framkvæma eitthvað sem stangast á við stjórnarskrá. Það leikur mikill vafi á því í þessu máli og auðvitað skiptir máli hvert innihald þess álits er sem fjmrn. hefur nú þegar fengið eftir því sem hv. þm. Pétur Blöndal hefur upplýst.