Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):
Herra forseti. Ég mæli fyrir litlu frv. á þskj. 380 um breyting á 16. gr. laganna um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997, með síðari breytingum.
Í þessu frv. er einvörðungu lagt til að í stað þess að lögbinda að tryggingayfirlæknir Tryggingastofnunar ríkisins meti orkutap sjóðfélaga í þessum ákveðna lífeyrissjóði muni trúnaðarlæknir sjóðsins annast matið. Þannig er þetta hjá öðrum lífeyrissjóðum og þykir að ég hygg sjálfsögð breyting.
Ég legg til, herra forseti, að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og hv. efh.- og viðskn.