Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Aðeins ein lítil spurning til hv. þm. Nú hefur það komið fram í könnunum sem gerðar hafa verið að það er samhengi á milli dreifingarmátans og neyslunnar. Þar sem aðgengi að áfengi og tóbaki hefur verið mjög mikið eins og t.d. í Danmörku, þar er neyslan mun meiri en t.d. í Svíþjóð þar sem þetta aðgengi hefur verið takmarkað. Dregur hv. þm. í efa niðurstöður slíkra rannsókna? Telur hann ekki vera neitt samhengi á milli dreifingarmátans annars vegar og neyslu vörunnar hins vegar?