Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Ég vil fyrst segja að það er nauðsynlegt að forsn. taki tillit til réttar þingmanna til þess að þeir skynji að þeir hafi rétt í þessum sölum. Hæstv. forseti, Halldór Blöndal, gerði það í morgun þegar hann studdi í reynd þær óskir sem við fluttum fram, að fundur yrði haldinn í efh.- og viðskn. til þess að fara yfir þessi mál. Sá fundur leiddi í ljós að það sem stjórnarandstaðan hafði sagt hér um skeið, að tiltekin ákvæði í frv. til breytinga á lögum um tekjuskatt og eignarskatt stangaðist á við stjórnarskrá, var rétt.
Nú hefur komið fram í máli hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur og annarra hv. þm. að enn telja menn vafa leika á því að sú breyting sem hæstv. fjmrh. hefur boðað að komi í stað hins umdeilda ákvæðis standist stjórnarskrá. Ég held því að það væri ákaflega þarft fyrir þingið, til þess að setja niður þessa deilu, að hæstv. forseti veitti stutt hlé, eins og stundarfjórðung, til þess að þingflokkarnir gætu farið yfir þetta og fulltrúarnir í efh.- og viðskn. gætu kannað þessa nýju stöðu, með það fyrir augum að menn geti síðan komið hér aftur og rætt þetta frv. og þá vonandi leitt það til lykta eins og rætt var áður.
Ég held að það sé ákaflega nauðsynlegt vegna forsögu málsins að þingmenn, ekki síst stjórnarandstöðunnar, fái svolítið tóm til þess að átta sig á þessari nýju stöðu, kanna röksemdirnar sem liggja fyrir í málinu og kanna þá tillögu sem hæstv. fjmrh. hefur boðað. Einungis fulltrúar stjórnarandstöðunnar í efh.- og viðskn. hafa fengið að heyra þá tillögu eða sjá, ég hef a.m.k. ekki orðið var við að henni hafi verið dreift, og ég held að þetta yrði mjög til þess að ná sátt um málið ef það er hægt.