Fjárlög 2004

Föstudaginn 05. desember 2003, kl. 14:06:35 (2775)

2003-12-05 14:06:35# 130. lþ. 43.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 2004# frv., GAK (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 130. lþ.

[14:06]

Guðjón A. Kristjánsson:

Virðulegi forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um það að standa að stofnun og eflingu veiðarfærarannsókna á Ísafirði. Tillagan er flutt í samræmi við m.a. tillögur Vestfirðinga um sérstakar aðgerðir í byggðamálum. Ég legg eindregið til að menn ljái þessu atkvæði sitt.