Fjárlög 2004

Föstudaginn 05. desember 2003, kl. 14:16:10 (2783)

2003-12-05 14:16:10# 130. lþ. 43.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 2004# frv., HlH (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 130. lþ.

[14:16]

Hlynur Hallsson:

Herra forseti. Ég er ekki búinn að sitja marga daga á þessu þingi. Ég kom inn sem varamaður á þriðjudaginn. Eitt veit ég þó, að maður skiptir ekki um skoðun þegar komið er á þing, maður kýs eftir sannfæringu sinni og stendur við orð sín. Orð skulu standa. Ég segi já.