Almannatryggingar

Laugardaginn 06. desember 2003, kl. 12:58:13 (2895)

2003-12-06 12:58:13# 130. lþ. 44.3 fundur 418. mál: #A almannatryggingar# (aldurstengd örorkuuppbót) frv. 130/2003, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 130. lþ.

[12:58]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Framlagning frv. er á mína ábyrgð. Taflan er unnin í mínu ráðuneyti og Öryrkjabandalaginu var kunnugt um það að ég mundi leggja frv. svona fram. Ég tilkynnti þeim það að sjálfsögðu. En hins vegar láðist mér áðan í framsöguræðu minni að biðja um að frv. yrði vísað til heilbr.- og trn. og ég vona að það brjóti ekki í bága við þingsköp að gera það hér með.