Helgi Hjörvar (andsvar):
Virðulegur forseti. Víst var samningurinn 25. mars ákaflega mikið ánægjuefni og á aðalfundi Öryrkjabandalagsins talaði ég fyrir því að menn lofuðu og prísuðu ríkisstjórn Íslands og hæstv. heilbrrh. fyrir það framtak. Ég hef líka gert það hér í ræðustól á Alþingi. Þess sárari vonbrigði voru það auðvitað að komast að því að það ætti ekki að standa við samkomulagið, því eins og hv. þm. Ásta Möller veit þá var ekki samið um neinn milljarð þó að ráðherra tilgreindi rúman milljarð sem áætlaðan kostnað í fréttatilkynningunni, enda trúi ég því að hér væru allir pallar fullir af hjúkrunarfræðingum ef kostnaðarmatið á kjarasamningum þeirra hefði verið haft sem pottlok ofan á kjarabætur hjúkrunarfræðinga á síðustu árum, virðulegur forseti.