Þuríður Backman (andsvar):
Frú forseti. Hv. frambjóðendur Framsfl. lofuðu að standa við samkomulagið, þ.e. ekki bara grunnlífeyri yngstu örorkuþeganna heldur nær samkomulagið til allra öryrkja frá 16 ára og til 67 ára aldurs, og þar skeikar þessum hálfa milljarði.
Í greinargerð sem Tryggingastofnunin vann og birtist 10. apríl (Gripið fram í: Ertu að segja að við höfum ...?) vegna samkomulagsins sem heilbrrn. gerði við Öryrkjabandalag Íslands kemur fram þessi ákveðna upphæð sem við erum alltaf að nefna hérna, 1 milljarður 528 millj. og þá eru 16 og 17 ára unglingar teknir með. Hvort þeir hv. þm. sem hér eru í salnum og frambjóðendur Framsfl. í síðustu kosningum hafi haft þessa tölu á hreinu get ég ekki sagt um. En þetta lá fyrir og það er það sem máli skiptir, hvort sem þeir vissu það eða ekki. (Gripið fram í.) Það var þá annarra að upplýsa þá um hvað þetta þýddi og það var og er auðvitað Framsóknarflokksins að standa við orð sín, standa við samkomulagið og vinna þannig að því á þessu ári, frá því í mars sl. og þar til fjárlagafrv. var afgreitt, að inn kæmi það fjármagn sem þurfti til þess að standa við samkomulagið.