Almannatryggingar

Laugardaginn 06. desember 2003, kl. 16:06:15 (2944)

2003-12-06 16:06:15# 130. lþ. 44.3 fundur 418. mál: #A almannatryggingar# (aldurstengd örorkuuppbót) frv. 130/2003, GÓJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 130. lþ.

[16:06]

Guðjón Ólafur Jónsson (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hlýt að lýsa sérstaklega yfir ánægju minni með það hvað hv. þm. er vel upplýstur um ætterni og uppruna hæstv. heilbrrh. og ég mundi nú hvetja þingmanninn til þess að kynna sér betur störf hæstv. ráðherra áður en hann flytur hér langar ræður. Sér í lagi hlýt ég að lýsa yfir ánægju minni með það að hv. þm. skuli fylgjast jafn vel með störfum Félags ungra framsóknarmanna í sínu kjördæmi og raun ber vitni. Það er athyglisvert og ég vona að hann geri það áfram.