Beint millilandaflug frá Akureyri

Miðvikudaginn 10. desember 2003, kl. 10:37:26 (2974)

2003-12-10 10:37:26# 130. lþ. 46.3 fundur 396. mál: #A beint millilandaflug frá Akureyri# fsp. (til munnl.) frá samgrh., samgrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 130. lþ.

[10:37]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):

Herra forseti. Hv. þm. Hlynur Hallsson spyr í fyrsta lagi: Hyggjast stjórnvöld kanna leiðir til að stuðla að beinu millilandaflugi frá Akureyri í ljósi þess að flugfélagið Grænlandsflug er að hætta slíku flugi?

Svar mitt er svohljóðandi: Millilandaflug verður ekki stundað nema fyrir því séu rekstrarlegar forsendur. Stjórnvöld hafa ekki í hyggju að beita beinum styrkjum eða sértækum aðgerðum til að millilandaflug verði stundað frá Akureyri. Telji flugfélag, hvaða nafn sem það ber, markaðslegar forsendur fyrir millilandaflugi frá Akureyri munu stjórnvöld fagna því og greiða götu þess félags sem mest má vera samanber þá fyrirgreiðslu við Air Greenland þegar það félag fékk öll þau leyfi og undanþágur sem það óskaði.

Ekki má gleyma því að samgrn. stóð styrkan vörð um hagsmuni Akureyringa með því að leyfa þetta flug án þess að um væri að ræða sömu gagnkvæmni réttinda samkvæmt loftferðasamningi við Dani sem þó hefði undir venjulegum kringumstæðum verið forsenda sem ekki hefði verið vikið frá. Því er ekki að neita að afgreiðsla þess var óvenjuleg og skapaði óánægju hjá íslenskum flugfélögum sem eiga ekki sömu möguleika á flugi til Grænlands. Því miður telur umrætt félag ekki vera markaðslegar forsendur fyrir fluginu og eru það mönnum vissulega vonbrigði.

Ríkisstyrkt millilandaflug þekkist ekki á Evrópska efnahagssvæðinu mér vitanlega og er í grundvallaratriðum óheimilt. Ef heimildir væru fyrir hendi er augljóst að ekki væri unnt að styrkja bara einn aðila meðan aðrir fengju ekki neitt. Ég treysti því hins vegar að þeir sem á þessum markaði starfa komi fram með lausnir sem geri millilandaflug frá öðrum stöðum en Keflavík fýsilegt, samanber flug LTU til Egilsstaða tvö undanfarin sumur.

Í öðru lagi spyr hv. þm.: Er ráðherra tilbúinn til að beita sér fyrir opinberum styrkjum til markaðssetningar á slíku flugi í því skyni að efla ferðaþjónustu á landsbyggðinni ef áhugasamir aðilar finnast til að sjá um flugreksturinn?

Aðgerðir stjórnvalda hafa leitt til þess m.a. og ekki síst aðgerðir atvinnugreinarinnar að gistinóttum á landsbyggðinni hefur fjölgað. Fyrstu níu mánuði þessa árs hefur hótelgisti\-nóttum á landsbyggðinni fjölgað um 8%. Á milli áranna 2001 og 2002 fjölgaði gisti\-nóttum á landsbyggðinni um 8,7% en á Norðurlandi eystra var fjölgunin 16,2% en á þeim tíma var flug Grænlandsflugs til Akureyrar ekki hafið.

Varðandi spurningu hv. þm. vil ég benda á það samstarf sem Ferðamálaráð Íslands býður upp á þegar kemur að markaðssetningu á erlendri grundu. Það er ekki um beina opinbera styrki að ræða heldur er verkefni þar sem hagsmunaaðilar ganga til samstarfs við Ferðamálaráð um markaðsverkefni erlendis. Markaðssetning á verkefni sem þessu fellur vel að þeim ramma sem samstarf getur náðst um. Fyrir þá sem ekki þekkja til, felst samstarfið í því að Ferðamálaráð leggur fram jafnháa upphæð þeirri sem viðkomandi hagsmunaaðili leggur í tiltekna markaðsaðgerð. Þau verkefni sem samstarf varð um á síðasta ári hafa gengið vel og eru menn almennt sammála því að þetta form hafi sannað ágæti sitt.

Nokkrar breytingar hafa verið gerðar frá því í fyrra hvað skilyrði samstarfsverkefna varðar og geta áhugasamir kynnt sér þær breytingar á heimasíðu Ferðamálaráðs.