Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Hér er verið að spyrja um beint millilandaflug frá Akureyri til útlanda og opinbera styrki til markaðssetningar. Ég verð að segja það að ef rekstraraðilar telja rekstrarforsendur fyrir slíku flugi, hljóta þeir að eiga kost á að sækja um það markaðsfé, þær 320 millj. kr. sem hæstv. ráðherra hefur sett til markaðssetningar, ef þeir hafa tök á því að setja fjármagn á móti eins og þær reglur eru í dag sem varða þetta fé til markaðssetningar. Rekstraraðilar hljóta því að geta sótt í það fé ef þeir hafa tök á því að setja sambærilegar upphæðir á móti eins og önnur ferðaþjónusta.