Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég held að hér sé enginn misskilningur á ferðinni. Ég taldi að menn ætluðu að taka málið upp í vor til þess að standa að fullu við samkomulagið. Ég gat ekki skilið annað hjá hæstv. ráðherra en að hann ætlaði að taka málið upp í vor til þess. Það sem ég var að segja var að ég teldi þá að menn ættu að vera með þau ákvæði í frv. nú þegar, hvernig menn ætla að standa við það samkomulag ef þeir ætla þá að gera það.
Varðandi þennan hóp, 16--18 ára, var ég að spyrja hvort ekki væri hægt að hafa heimild fyrir þessa ólögráða öryrkja sem eru á framfærslu foreldra sinna til þess að þeir fái sambærilegar greiðslur og þeir sem eru 18 ára og ef menn teldu síðan ástæðu til að fara frekar umönnunargreiðsluleiðina hefðu þeir möguleika á því. Það var spurningin sem ég varpaði fram, hvort það hefði ekki verið skoðað, og þá hefði verið hægt að setja inn í frv. þá heimild. Það gæti jafnvel komið betur út fyrir þennan hóp fólks á þessu aldursbili. Við vitum að kostnaður getur verið meiri en fyrir þá sem yngri eru einmitt á þessu aldursbili.