Framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum

Fimmtudaginn 11. desember 2003, kl. 12:10:05 (3169)

2003-12-11 12:10:05# 130. lþ. 48.3 fundur 417. mál: #A framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum# (sauðfjárbændur) frv. 131/2003, Frsm. meiri hluta DrH
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 130. lþ.

[12:10]

Frsm. meiri hluta landbn. (Drífa Hjartardóttir):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frv. til laga um breytingar á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum frá meiri hluta landbn.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigríði Norðmann frá landbúnaðarráðuneyti og Ara Teitsson frá Bændasamtökum Íslands.

Með frumvarpinu er landbúnaðarráðherra heimilað að semja við bændur sem eru 64 ára eða eldri um að þeir fái beingreiðslur út á greiðslumark sitt án þess að framleiða kindakjöt. Samningarnir gilda til 31. desember 2007, en þá rennur út gildandi sauðfjársamningur milli bænda og ríkisins.

Meiri hlutinn telur frumvarpið til þess fallið að auka sveigjanleika í greininni og laga framleiðsluna að markaðnum. Þá sé með því komið til móts við ákveðinn aldurshóp bænda sem vill mögulega hætta eða taka sér hlé frá búskap.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Inngangsmálsliður 1. gr. orðist svo: Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi.

Hv. þm. Lúðvík Bergvinsson, Magnús Stefánsson og Einar Oddur Kristjánsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins og undir þetta nefndarálit rita háttvirtir þingmenn Drífa Hjartardóttir, Jón Bjarnason, Guðmundur Hallvarðsson, Dagný Jónsdóttir og Anna Kristín Gunnarsdóttir