Flm. (Halldór Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Það mat liggur ekki fyrir en ég vil benda hv. þm. á að hér er síður en svo um það að ræða, eins og ég sagði í ræðu minni, að alþingismenn geti gengið út frá því að hin nýja skipan hækki eftirlaun þeirra. Þvert á móti má búast við því að mikill fjöldi alþingismanna muni eftir löggildingu þessa frv. búa við lakari lífeyrisrétt en nú er.
Hitt er rétt, ef hv. þm. er að spyrja um það, að hér er verið að greiða fyrir því að ráðherrar og þingmenn eftir mjög langa þingsetu geti notið eftirlauna nokkru fyrr en nú er og að sjálfsögðu vegur það upp á móti því sem ég sagði um að eftirlaunaréttur annarra þingmanna skerðist.
Ég vil líka benda hv. þm. á að hér er gert ráð fyrir því að hækka iðgjaldagreiðslur alþingismanna um 25%, um fjórðung, úr 4% í 5%, til að mæta því að eftirlaunaréttur alþingismanna er ríkari en almennt gerist.