Pétur H. Blöndal:
Herra forseti. Það kerfi sem hér er tekið upp er það vitlaust að ég sem tryggingafræðingur get ekki stutt það. Ég hefði viljað hafa allt annað kerfi sem hefði bæði verið ódýrara og það hefði líka mátt gera betur við þá öryrkja sem eru verst settir. Ég sit því hjá.