Ögmundur Jónasson (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Í þessu frv. er tekið á ýmsum þáttum skattalaga og horfa sumar breytingar til góðs, aðrar eru ámælisverðar og sumar stórvarasamar. Þar vil ég sérstaklega nefna skerðingu á vaxtabótum upp á 600 millj. kr. Þetta er gert gegn mótmælum víðs vegar að úr samfélaginu og vísa ég þar til nær gervallrar verkalýðshreyfingarinnar sem hefur varað við þessum kerfisbreytingum.
Hins vegar nefndi ég að það væri sitthvað sem horfði til framfara. Það er gott að við skulum nema úr gildi ákvæði sem heimila alþjóðleg viðskiptafélög. Það er samstarfsverkefni viðskrn. og Verslunarráðsins sem hefur kostað skattgreiðendur tugi milljóna en ekki skilað neinum árangri, sem kannski er til góðs vegna þess að það er ósiðlegt athæfi sem í þessu felst.
Um atriði sem við styðjum í þessu frv. vil ég sérstaklega nefna framlengingu á sérstökum tekjuskatti sem í daglegu tali er vísað til sem hátekjuskatts. Það ákvæði laganna styðjum við í Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði.