Tímabundin ráðning starfsmanna

Fimmtudaginn 11. desember 2003, kl. 23:47:30 (3237)

2003-12-11 23:47:30# 130. lþ. 48.18 fundur 410. mál: #A tímabundin ráðning starfsmanna# (EES-reglur) frv. 139/2003, ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 130. lþ.

[23:47]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Hér er til umræðu frv. um tímabundna ráðningu starfsmanna. Þetta frv., eða öllu heldur drög þessa frv. hafa verið í smíðum í alllangan tíma og verið haft samráð við málsaðila, bæði af hálfu fulltrúa launafólks og við atvinnurekendur. Það hefur verið tekið tillit til þeirra sjónarmiða sem fram hafa komið beggja vegna borðsins. Ég vil lýsa eindregnum stuðningi við þetta frv. og fagna þeim vinnubrögðum sem hafa verið í frammi höfð við samningu frv.