Jón Bjarnason (andsvar):
Virðulegi forseti. Gatið er áfram undir þó menn bæti bót ofan á bót. Það breytir því ekki og ég tek undir það með hv. þm.
Hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson staðfesti það sem ég sagði, að heimildin nú til úthlutunar er 15 þús. tonn þó svo að 12 þús. tonnin séu með ákveðnum reglum skert til ákveðinna verka. En heildarheimildin hljóðar upp á 15 þús. tonn í dag. Hv. þm. staðfesti það og það verður skorið niður í 12 þús. tonn á tveimur árum og jafnframt verður úthlutunarreglum eða möguleikum til ráðstöfunar breytt. En niðurskurður á byggðakvóta í heild eða heimildinni liggur fyrir og ég vil benda hæstv. forseta á að þetta gengur þvert á það sem framsóknarmenn lofuðu. Þeir lofuðu aukningu í heimildum til byggðakvóta. Það var heldur ekki í kosningaloforðum Sjálfstfl. að taka upp línuívilnun á kostnað heimildar til byggðakvóta.