Sigurjón Þórðarson (andsvar):
Frú forseti. Ég tel rétt að upplýsa þingheim um það að frv. breyttist í meðförum nefndarinnar. Ég taldi, og tel enn, að frv. verði miklu betra ef við fellum þetta ákvæði út. Mér finnst óbilgirni að þegar flutningsmaður tillögu kemur með eina brtt. sem er alger grundvallarafstaða til málsins sé ekki hlustað. Það er algerlega óásættanlegt að Alþingi og stjórnvöld hafi bein afskipti af störfum stjórnmálaflokka, hvernig formenn og trúnaðarmenn í stjórnmálaflokkum eru launaðir. Ég stend við það. Mér finnst það vera mjög eðlileg afstaða og ég botna í rauninni ekkert í hv. þm. að vera mér ekki sammála. Ungir sjálfstæðismenn í Heimdalli hafa ályktað um þetta mál og ég held að hann ætti að kynna sér það.