Eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara

Laugardaginn 13. desember 2003, kl. 14:22:08 (3415)

2003-12-13 14:22:08# 130. lþ. 50.2 fundur 447. mál: #A eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara# frv. 141/2003, SigurjÞ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 130. lþ.

[14:22]

Sigurjón Þórðarson (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla ekki að taka þátt í miklum málfundarleikjum við varaþingmenn Framsfl. Það kom fram í umræðunni áðan að ég teldi að ég hefði gert mistök við að setja nafn mitt við þetta frv. án fyrirvara og ef þú hefur misst af því endurtek ég það hér og nú.

(Forseti (BÁ): Forseti áminnir þingmann um að ávarpa ekki þingmann beint.)

Ég vil að það komi skýrt fram ef þú hefur misst af því hér fyrr í umræðunni.