Eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara

Laugardaginn 13. desember 2003, kl. 14:26:46 (3422)

2003-12-13 14:26:46# 130. lþ. 50.2 fundur 447. mál: #A eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara# frv. 141/2003, PM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 130. lþ.

[14:26]

Páll Magnússon (andsvar):

Hæstv. forseti. Frjálsl. hefur greinilega tamið sér að svara ekki þeim spurningum sem til þingmanna hans er beint. Hann svaraði þessu í engu. Hefur hv. þm. heyrt eitthvað af hv. þm. Guðjóni A. Kristjánssyni? (GMJ: Ég ...) Styður formaður Frjálsl. frv. eins og það liggur fyrir? Það væri ágætt fyrir okkur að fá það fram hér í umræðunni.