Ögmundur Jónasson (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Þingmenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs mótmæla þeim vinnubrögðum sem hafa verið viðhöfð í meðferð þessa lagafrv. Af okkar hálfu var formlega farið fram á að afgreiðslu málsins yrði frestað. Þeirri kröfu var hafnað.
Af hálfu þingmanna Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs hefur komið skýr afstaða til frv. og hefur það verið harðlega gagnrýnt á ýmsum forsendum. Eindregin andstaða úr röðum þingflokks VG hefur verið öllum málsaðilum ljós frá upphafi og því ósatt að um samkomulag hafi verið að ræða. Ég tel að með þessu lagafrv. sé verið að treysta misrétti í sessi og það er stefnt í afturhaldsátt. Ég harma þá niðurstöðu.