Þuríður Backman:
Herra forseti. Í frv. er gert ráð fyrir 50% álagsgreiðslum til formanna þingflokka í stjórnarandstöðu og þeirra sem ekki eiga ráðherra sem formenn. Ég tel að það sé nokkuð bratt í farið að koma inn með nýtt ákvæði með 50% álagi og tel að hér sé einnig verið að skapa meiri mun á milli þingmanna. Ég tel því rétt að farin sé sú leið að hafa sömu álagsgreiðslur á formenn stjórnarandstöðuflokkanna eins og aðrar álagsgreiðslur sem eru viðhafðar hjá varaforsetum og nefndarmönnum.