Jólakveðjur

Mánudaginn 15. desember 2003, kl. 13:01:29 (3506)

2003-12-15 13:01:29# 130. lþ. 51.96 fundur 254#B Jólakveðjur#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 130. lþ.

[13:01]

Forseti (Halldór Blöndal):

Þá er komið að lokum síðasta fundar Alþingis fyrir jólahlé. Ég færi alþingismönnum öllum svo og starfsfólki Alþingis þakkir mínar fyrir gott samstarf á haustþinginu og óska öllum gleðilegrar og farsællar jólahátíðar og farsæls nýárs. Þeim sem eiga um langan veg heim að fara óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og bið þess að við megum öll hittast heil á nýju ári. Landsmönnum öllum sendi ég mínar bestu jóla- og nýársóskir.