Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 111. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 325  —  111. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði, l. nr. 54/1990, um innflutning dýra, og l. nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.

Frá minni hluta landbúnaðarnefndar (LB, AKG, ÁF, ÁSJ).



    Við 6. gr.
     a.      Við fyrri málslið 1. efnismgr. bætist: nema önnur lög, svo sem náttúruverndarlög, og alþjóðasamningar sem Ísland er skuldbundið af banni slíkan innflutning vegna sjónarmiða um verndun tegunda, stofna, vistgerða eða vistkerfa.
     b.      2. efnismgr. falli brott.