Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 869. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1451 — 869. mál.
um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2003, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bergdísi Ellertsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Elvu Ósk Wiium og Guðmund Guðbjarnason frá fjármálaráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 176/2003 frá 5. desember 2003, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/51/EB frá 18. júní 2003 um árleg reikningsskil og samstæðureikningsskil félaga af tiltekinni gerð, banka og annarra fjármálastofnana og vátryggingafélaga.
Markmið tilskipunar 2003/51/EB er að tryggja að samræmi sé milli tilskipana Evrópusambandsins um reikningsskil og alþjóðlega reikningsskilastaðla, svo og gerð og framsetningu á skýrslu stjórnar og skýrslu endurskoðenda og þar er mælt fyrir um strangari kröfur um samræmi skýrslna við bestu viðteknu starfsvenjur. Þá verður fleiri félögum gert kleift að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum í reikningsskilum sínum.
Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og er gert ráð fyrir að lagafrumvarp verði lagt fram á haustþingi 2004.
Guðmundur Árni Stefánsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1451 — 869. mál.
Nefndarálit
um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2003, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bergdísi Ellertsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Elvu Ósk Wiium og Guðmund Guðbjarnason frá fjármálaráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 176/2003 frá 5. desember 2003, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/51/EB frá 18. júní 2003 um árleg reikningsskil og samstæðureikningsskil félaga af tiltekinni gerð, banka og annarra fjármálastofnana og vátryggingafélaga.
Markmið tilskipunar 2003/51/EB er að tryggja að samræmi sé milli tilskipana Evrópusambandsins um reikningsskil og alþjóðlega reikningsskilastaðla, svo og gerð og framsetningu á skýrslu stjórnar og skýrslu endurskoðenda og þar er mælt fyrir um strangari kröfur um samræmi skýrslna við bestu viðteknu starfsvenjur. Þá verður fleiri félögum gert kleift að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum í reikningsskilum sínum.
Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og er gert ráð fyrir að lagafrumvarp verði lagt fram á haustþingi 2004.
Guðmundur Árni Stefánsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Alþingi, 20. apríl 2004.
Sólveig Pétursdóttir,
form., frsm.
Jónína Bjartmarz.
Drífa Hjartardóttir.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Steingrímur J. Sigfússon.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Magnús Stefánsson.
Þórunn Sveinbjarnardóttir.