Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 737. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1692  —  737. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um stofnun Landsnets hf.

Frá iðnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti sem tilgreindir eru í nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (þskj. 1690 – 740. mál). Umsagnaraðilar eru í aðalatriðum þeir sömu og þar greinir. Málin voru unnin samhliða frumvarpi til laga um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku (747. mál).
    Með frumvarpinu er lagt til að stofnað verði hlutafélag til að annast raforkuflutning og kerfisstjórnun samkvæmt ákvæðum III. kafla raforkulaga sem verði að fullu í eigu ríkisins með þriggja manna stjórn sem iðnaðarráðherra skipar. Félagið taki við rekstri flutningsvirkja og eignum sem lagðar verða til þess og þegar endanlegt mat þeirra liggur fyrir verði þeim sem leggja eignirnar til heimilt að endurgreiða hlut ríkisins.
    Nefndin vísar til umfjöllunar í nefndaráliti iðnaðarnefndar um frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og frumvarp til laga um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku og til þeirra breytinga sem nefndin leggur til á þeim.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Sigurjón Þórðarson skrifar undir álitið með fyrirvara.

Alþingi, 14. maí 2004.



Kristinn H. Gunnarsson,


form., frsm.


Einar Oddur Kristjánsson.


Kjartan Ólafsson.



Kristján L. Möller.


Einar Karl Haraldsson.


Sigurjón Þórðarson,


með fyrirvara.



Guðlaugur Þór Þórðarson.


Guðmundur Hallvarðsson.


Björgvin G. Sigurðsson.